Hitaveita Reykjavíkur keypti verk Ingunnar við opnun Perlunnar árið 1991 í framhaldi af sýningunni „Summer Exhibit in the Winter Garden“.
Um er að ræða sex hringlaga glerlistarverk úr munnblásnu gleri og upphleyptum andlitum dætranna. Fyrst er andlitið mótað í leir og gler lagt ofan á hann, sem er síðan brætt í ofni.
Hugmyndin var að fylla ekki upp í ferkantaðar rúður Perlunnar – í stað þess valdi Ingunn hringlaga form eilífðarinnar, Perlunnar og tankanna sjálfra.
Þemað í verkinu er byggt á grískri goðsögn um 50 dætur Danaos konungs. Þeim var í refsingarskyni gert að bera vatn í fötum í botnlaust kerald. Ingunn fangar vatnið og þrautseigjuna í listaverkunum sex.
Flugmálastjórn óskaði eftir spegilmynd glerlistaverksins Vængjuð veröld fyrir höfuðstöðvar Flugmálastjórnar í Nauthólsvík.
Glerlistaverkið „Vængjuð veröld“ (enska Winged World, franska Le Monde Ailé) er gjöf Flugmálastjórnar til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) í tilefni af því að stofnunin flutti starfsemi sína í glæsileg ný húsakynni í Montreal í desember 1996.
Listaverkið á að minna á oddaflug á gæsa og álfta. Það er í fimm hlutum sem tákna heimsálfurnar fimm. Allur heimurinn kemur fram í verkinu og það endurspeglar hið alþjóðlega umhverfi flugmála og flugumferðarstjórnar og undirstrikar mikilvægt samstarf aðildarríkja ICAO. Í verkinu eru dökkleitir hringir sem tákna ratsjárgeisla. Íslenski fáninn er dreginn fram í bláum, rauðum og hvítum litum verksins. Ísland sker sig úr, enda er það gert úr fallega hreinum og hvítum bergkristal af Austfjörðum.
Ingunn vann þetta verk að beiðni Flugmálastjórnar – en verk eftir hana prýða byggingar beggja vegna Atlantshafsins. Listaverkið er þáttur Íslands í sameiginlegri gjöf Norðurlandaþjóðanna til ICAO.
Verkið er gert úr munnblásnu gleri, spegli, blýi og bergkristal.